Hótel Vatnajökull - verið velkomin

Hótel Vatnajökull - verið velkomin
Hótel Vatnajökull - verið velkomin

Fosshótel er leiðandi hótelkeðja á Íslandi og menn stórhuga þar á bæ. 2013 var opnað hótel á Patreksfirði og núna 2014 opnaði keðjan glæsilegt hótel nokkru vestan við Höfn í Hornafirði undir nafninu Hótel Vatnajökull.

Rafeyrarmenn hafa lagt gjörva hönd á plóginn bæði fyrir vestan og fyrir austan. Frá Akureyri er álíka langt á hvorn stað fyrir sig en menn hafa ekki sett það fyrir sig. Rúnar Héðinn Bollason hefur leitt verkið af hálfu Rafeyrar og haft með sér vaska sveit. 
Hótelið er hið glæsilegasta og eigendum og þeim sem byggðu til sóma, er þeim öllum óskað til hamingju með framúrskarandi verk.