Saga Rafeyrar

Upphafið

Rafeyri ehf. var stofnuð 1994 upp úr rafmagnsdeild Slippstöðvarinnar.
Jónas M. Ragnarsson er rafvirkjameistari félagsins bæði með A- og B-löggildingu.
Rafeyri var í rúman áratug til húsa að Hjalteyrargötu 20 en er nú staðsett að Norðurtanga 5.

Starfsemin

Þjónusta við útgerðir var í upphafi rauði þráðurinn í starfseminni en hefur nú á síðari árum færst meira út í þjónustu við orkugeirann og smíði stórra uppsjávarverksmiðja. Fyrirtækið þjónustar einstaklinga í litlu mæli en leggur áherslu á fyrirtæki og útboðsverk. Sérstök áhersla er á háspennurafvirkjun. Tæknideild Rafeyrar annast tilboðsgerð, teikni- og hönnunarvinnu ásamt því að leiða tæknihluta verka. Starfssvæði Rafeyrar er nánast um allt land þó langmest af verkefnunum séu staðsett á Eyjafjarðarsvæðinu. Einnig hafa starfsmenn fyrirtækisins sinnt verkefnum vítt og breitt um jarðarkringluna, meira að segja austast í Rússlandi. Stjórnarformaður er Davíð Hafsteinsson, rafiðnfræðingur og með honum í stjórn sitja þeir Jónas M. Ragnarsson, rafvirkjameistari og Gunnar E. Gunnarsson, rafvirki. Framkvæmdastjóri er Kristinn Hreinsson, rekstrarfræðingur. Stærstu verkefnin í sögu fyrirtækisins eru stækkun og endurbætur á Lagarfossvirkjun, uppbygging aflþynnuverksmiðju Becromal í Krossanesi og Þeistareykjavirkjunar.
Ársstörfum hefur fjölgað umtalsvert undanfarin ár og 2021 voru þau um 65. Stærstu birgjar Rafeyrar eru Johan Rönning, Ískraft og Reykjafell.

Segja má að fyrirtækið hafi stækkað árið 2020 þegar það eignaðist Rafmagnsverkstæði Andrésar ehf. á Eskifirði. Þar voru þá starfandi 5 manns en ári síðar eru þeir orðnir nánast tvöfalt fleiri. Mikill vöxtur er í samfélaginu á Austfjörðum og uppbygging atvinnufyrirtækja í takt við hann.

Eigendurnir

Eigendur eru tólf og eru þeir Davíð Hafsteinsson, Jónas M. Ragnarsson, Gunnar E. Gunnarsson, Guðmundur Blöndal, þrír bræður Þorkell Björnsson, Björn Óskar Björnsson, Ingvi Þór Björnsson, Gunnar Valur Eyþórsson, Kári Már Jósavinsson, Baldur Stefánsson, Bergsveinn Elidon Kristinsson og Kristján Ingi Arnarsson. Þeir fjórir fyrst nefndu eru meðal stofnenda fyrirtækisins og hafa starfað óslitið hjá félaginu frá upphafi. 2002 sameinuðust Rafeyri og Bláþræðir og fengu þá bræðurnir þrír eignarhluti í Rafeyri.

Starfsmennirnir

Það hefur verið gæfa Rafeyrar að hafa ætíð kraftmikla og metnaðarfulla starfsmenn. Rafvirki, vélstjóri, vélvirki, rafvélavirki, rafiðnfræðingur, iðnaðarrafvirki, vélfræðingur, rafvélavirkjameistari og vélvirkjameistari eru meðal þeirra réttindaheita sem prýða starfsmannahópinn. Eitt af því sem alla tíð hefur verið lögð áhersla á hjá Rafeyri er að starfsmenn þess vaxi í starfi, séu upplýstir um nýjustu tækni og aðferðir og séu helst skrefi á undan. Í því skyni hafa fagsýningar, fagráðstefnur og námskeið verið sótt af miklum móð. Hefur Rafeyri fengið á sig orð að vera framsækið fyrirtæki með fagmenn sem kunna lausnir á viðfangsefnunum.

Rafeyrarhjartað

Fyrirtækið hefur í gegnum tíðina stutt við starfsemi hinna ýmsu félaga og styrktaraðila með smáum og stórum upphæðum. Rafeyrarhjartað er á réttum stað og í ljósi þess var sett upp uppljómað hjarta í Vaðlaheiði. Fjölmargir bæjarbúar hafa lýst yfir ánægju sinni með uppátækið og segja að þetta hafi létt þeim lundina í svartnættinu. 

Félagslífið

Lífsgleði og góður starfsandi einkennir lífið á Rafeyri. Eigendur hafa farið þar í fararbroddi og fyrirtækið hefur ávallt verið ötult við að styðja við félagslíf starfsmanna. Annað hvert ár hefur verið farið erlendis en þess utan eru einnig haldin Litlu-Jól, golfmót, keilumót, farið í skemmtiferðir, fjölskylduútilegur o.s.frv.