|
Skrifað af: Davíð Hafsteinsson
|
|
Rafeyri hefur frá upphafi sérhæft sig í skiparafmagni enda var fyrirtækið stofnað upp úr rafmagnsdeild Slippstöðvarinnar á Akureyri.
Rafeyri hefur ávallt haft náið samstarf við Slippinn á Akureyri bæði í viðhaldsverkefnum og nýsmíðum.
Það að tæknideild sé starfrækt hjá Rafeyri geri viðskiptamönnum Rafeyrar kleift að fá heildarlausn sinna mála á einum stað sem sparar bæði tíma og peninga og lækkar flækjustig.
Listinn hér fyrir neðan er ekki tæmandi fyrir þau verk sem Rafeyri sinnir um borð í skipum en segir þó margt um hversu víðtæk þjónusta okkar við skip er:
- Álagsprófun rafala
- Forritun ýmiskonar iðnstýringa og hraðabreyta
- Hönnun og smíði siglingaljósataflna
- Hönnun rafkerfa í smábáta
- Hönnun nýsmíði og úttekt brunaviðvörunarkerfa
- Hönnun og uppsetning rafkerfa fyrir frystikerfi
- Kvörðun nema og rofa í aðvörunarkerfum
- Leguskipti í rafölum og mótorum
- Myndun á rafmagnstöflum og ýmsum kerfum með hitamyndavél
- Sala og uppsetning nýrra aðvörunarkerfa
- Sala og uppsetning nýrra kallkerfa
- Stilling á rafalavörnum
- Stýrikerfi fyrir millidekk, hönnun, teikning og uppsetning
- Útleiðslumælingar og viðgerðir
- Úttekt á rafmagnshluta slökkvikerfa
- Vélstjórnunarkerfi
- Þrif á rafölum og mótorum
|
|
Síðast uppfært ( Mánudagur, 05. mars 2012 08:50 )
|