|
|||
|
|
Siglingin yfir hafið til Noregs gekk áfallalaust fyrir sig og nú þegar hefur Saga K sannað ágæti sitt. Aflabrögð hafa verið með miklum ágætum og skipið reynst hið besta. Eiríkur Vignir rafvirki á Rafeyri hefur leitt rafvirkjavinnu Rafeyrar hjá Seiglu og eiga hann og hans mikinn hluta í gæðum bátsins. Nýlega bárust Eiríki þrjár myndir frá ánægðum eiganda sem vert er að deila með ykkur. Vonandi kemst Saga K ætíð heil í höfn og mega happafengir bíða hennar í framtíðinni.
|
|
| Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 19. janúar 2012 15:27 ) |