|
|||
|
|
There are no translations available. Klúbburinn var stofnaður 13. júlí 2010 með mjög óformlegum hætti. Hugmynd kviknaði og var framkvæmd. Tilurð hugmyndar var fyrirhuguð ferð starfsmanna til Tenerife í september 2010. Stefnt er á að leigja mótorhjól og ferðast um eyjuna. Fimm starfsmenn Rafeyrar eru akandi um á mótorhjólum eða vespum. Nokkrir hafa mótorhjólapróf og aðrir stefna á slíkt próf. Áhugi á mótorsportinu fer vaxandi innan fyrirtækisins. Nú þegar þessar línur eru ritaðar hafa níu manns skráð sig í félagið eða 17% starfsmanna og verktaka Rafeyrar. Inntökuskilyrði eru að vera starfsmaður eða verktaki hjá Rafeyri ehf. og hafa áhuga á mótorhjólum. Stefnt verður að styttri ferðum innanlands á næsta ári. Akureyri, 18. ágúst 2010 Begga Rafmótor # 1
Félagar í Rafmótor:
|
|
| Last Updated ( Tuesday, 30 November 1999 00:00 ) |
