|
Rafeyri - Framúrskarandi fyrirtæki 2011 |
|
Skrifað af: Hannes Garðarsson
|
|
Rafeyri ehf. hefur verið tilkynnt að félagið hafi verið metið sem framúrskarandi fyrirtæki af hálfu Creditinfo annað árið í röð.
2010 voru rúmlega 150 fyrirtæki á listanum en í þetta sinn eru þau 244 og er það ánægjulegt að fleiri fyrirtæki nái því marki.
Eftirfarandi upplýsingar eru lagðar til grundvallar á mati Creditinfo um hvort fyrirtæki uppfylli skilyrði styrkleikamatsins:
- Að hafa skilað ársreikningum til RSK fyrir rekstrarárin 2007 til 2009
- Að vera í CIP áhættuflokkum 1-3 í janúar 2011 (minna en 1% líkur á vanskilum)
- Að sýna ≥ 0 kr. rekstrarhagnað (EBITD) þrjú ár í röð, 2007 - 2009
- Að ársniðurstaða sé jákvæð þrjú ár í röð, 2007 – 2009
- Eignir séu 100 milljónir kr. eða meira rekstrarárin 2007 – 2009
- Að eigið fé sé 20% eða meira rekstrarárin 2007 – 2009
- Að vera virkt fyrirtæki samkvæmt skilgreiningu Creditinfo
Annars er hægt að sjá lista þeirra fyrirtækja sem fylla þennan lista á heimasíðu Creditinfo á slóðinni:
http://www.creditinfo.is/lanstraust/onnur-thjonusta/framurskarandi-fyrirtaeki/
Þennan árangur má þakka metnaði eigenda og starfsmanna í að skila góðu verki og góðum starfsanda.
Það er stefna Rafeyrar að halda áfram á sömu braut með gæði og hag viðskiptavina sinna að leiðarljósi. |
|
|
Útgerð Sögu K er ánægð með fleytuna |
|
Skrifað af: Hannes Garðarsson
|
|
Siglingin yfir hafið til Noregs gekk áfallalaust fyrir sig og nú þegar hefur Saga K sannað ágæti sitt. Aflabrögð hafa verið með miklum ágætum og skipið reynst hið besta.
Eiríkur Vignir rafvirki á Rafeyri hefur leitt rafvirkjavinnu Rafeyrar hjá Seiglu og eiga hann og hans mikinn hluta í gæðum bátsins. Nýlega bárust Eiríki þrjár myndir frá ánægðum eiganda sem vert er að deila með ykkur.
Vonandi kemst Saga K ætíð heil í höfn og mega happafengir bíða hennar í framtíðinni.



|
|
Stuttnámskeið - Jarðtenging boðskiptalagnakerfa |
|
Skrifað af: Hannes Garðarsson
|
|
Þriðjudaginn 22. nóvember 2011 kom Friðrik Alexandersson rafmagnstæknifræðingur hjá Verkís norður til að halda námskeið á Rafeyri. Námskeiðið var á vegum Rafiðnaðarskólans og var það í boði fyrir sunnan. Hins vegar þótti okkur Rafeyrarmönnum betra að fá einn mann norður frekar en að senda tuttugu suður.
Námskeiðið sátu tuttugu áhugasamir starfsmenn Rafeyrar og vonandi verða þeir færari þegar til kastanna kemur. Friðrik hefur mikla reynslu á þessu sviði og er einn helsti sérfræðingur Verkís á því.
Í upphafi námskeiðsins varpaði hann fram spurningu til nemana um hvort þeir væru að kljást við truflanir eða háa bilanatíðni tækja.
Við þökkum Friðriki fyrir komuna og kennsluna.

|
|
|
Skrifað af: Hannes Garðarsson
|
|

Seigla ehf afhenti nýjum eigendum nýja fleytu þann 17. desember s.l. Ber hann nafnið Saga K og er í eigu íslenskra aðila í Norður-Noregi.
Þetta er langstærsti bátur sem Seigla hefur smíðað fram að þessu og hann 15 m langur með 2 ljósavélum 1000 hestafla aðalvél, mjög vel búinn.
Rafeyri annaðist alla raflagnavinnu og uppsetningu hinna ýmsu kerfa í bátnum. Aðstaða um borð er til fyrirmyndar og fer Saga K á línuveiðar.
|
|
Krummaklóin er komin á markað |
|
Skrifað af: Sigurður Jóhannsson
|
|

Krummaklóin vakti mikla athygli á Sjávarútvegssýningunni. Hægt er að nálgast gripinn með því að senda tölvupóst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða hringja í síma 460-7800
Myndbandið hér að neðan sýnir vel hvernig klóin léttir mönnum störfin til sjós og lands.
Margra ára reynsla er í notkun Krummaklóarinnar og leiðir hún til þess að þrif batna, meðferð bandanna verður betri, minni tími fer í að taka færiböndin í sundur og að setja þau aftur saman, færri hendur þarf til verksins, afurðir verða betri og það sem heillar suma mest, hagnaður verður meiri.
|
|
Nánar... |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 3 |